Almennt
Sérsteypan framleiðir hágæða forsteyptar steinsteypueiningar í nýrri verksmiðju í Þorlákshöfn. Við sérhæfum okkur í samlokuveggjum, burðarveggjum, innveggjum, filigran loftaplötum, svölum og stigum. Framleiðslan byggir á ISO 9001 gæðakerfi og norrænum hönnunarstöðlum.
Þessi handbók lýsir byggingarkerfi Sérsteypunnar, hönnunarforsendum, vörum og stöðluðum deilum. Hún er ætluð verkfræðingum og arkitektum sem hanna mannvirki úr forsteyptum einingum frá Sérsteypunni.
- Framleitt á Íslandi í nýrri verksmiðju í Þorlákshöfn
- Stórar veggeiningar — allt að 10 m langar og 4 m háar
- 20 tonna lyftigeta og sérhæfð framleiðsluborð
- Filigran og samlokuveggir frá sama framleiðanda
- Filigreen / Cobiax lausnir með minni steypunotkun
- Hönnunarstuðningur fyrir verkfræðinga og arkitekta
Hönnunarforsendur
Einingar eru hannaðar og framleiddar samkvæmt evrópskum stöðlum (sjá viðauka). Eftirfarandi eru almennar framleiðsluforsendur; verkfræðingur staðfestir burðarþol, járnabindingu og festingar fyrir hvert verk.
| Hámarkslengd veggeininga | 10 m |
| Hámarkshæð veggeininga | 4 m |
| Hámarksþyngd einingar | 20 tonn |
| Filigran, slakbent — hámarkshaf | 4 m |
| Filigreen / Cobiax — hámarkshaf | 8 m |
| Burðargeta flutningabíls | 24 tonn / ferð |
Byggingarkerfi Sérsteypunnar (SBS)
Byggingarkerfi Sérsteypunnar (SBS) nær yfir veggi, loftaplötur, svalir, stiga og sökkla. Vörur bera kóða með forskeytinu SBS- og stöðluð deili forskeytið SSD-, þannig að hægt er að vísa nákvæmlega í hverja einingu og hverja tengingu í hönnun og tilboðum.
- VeggirSBS-S320 · SBS-W150 · SBS-W120
- Filigran loftaplöturSBS-F60 · SBS-F80P
- SvalirSBS-B
- Stigar og pallarSBS-ST
- SökklarSBS-SK
Vörulýsingar
Tæknilegar lýsingar á einingum kerfisins. Verð fer eftir tilboði hverju sinni.
Veggir
Samlokuveggur 320 mm
SBS-S320
Forsteyptur samlokuveggur með innbyggðri einangrun. Veðurkápa og innra byrði eru steypt í einu lagi með einangrun á milli, þannig að veggurinn kemur fulleinangraður á byggingarstað og tilbúinn fyrir lokafrágang beggja vegna. Mikil varmaeinangrun og hröð uppsetning.
- Heildarþykkt
- 320 mm
- Uppbygging
- 70 mm veðurkápa · 180 mm einangrun · 70 mm innra byrði
- Hámarkslengd
- allt að 10 m
- Hámarkshæð
- allt að 4 m
- Einangrun
- Innbyggð, samfelld (kuldabrúalaus)
Burðarveggur 150 mm
SBS-W150
Heilsteyptur forsteyptur burðarveggur sem ber lóðrétt álag og myndar skilrúm milli rýma. Verksmiðjuframleiddur með mikilli nákvæmni sem fækkar vinnustundum á byggingarstað.
- Þykkt
- 150 mm
- Hámarkslengd
- allt að 10 m
- Hámarkshæð
- allt að 4 m
- Yfirborð
- Slétt, tilbúið fyrir frágang
Innveggur 120 mm
SBS-W120
Forsteyptur innveggur með sléttu yfirborði tilbúnu fyrir málningu eða aðra yfirborðsmeðferð. Skilar jöfnu, hljóðdeyfandi skilrúmi án múrverks á staðnum.
- Þykkt
- 120 mm
- Hámarkslengd
- allt að 10 m
- Yfirborð
- Slétt, tilbúið fyrir málningu
Filigran loftaplötur
Filigran loftaplata 60 mm
SBS-F60
Slakbent filigran loftaplata sem virkar sem varanlegt mót fyrir ásteypu. Tengi- og loftadósir eru steyptar inn í verksmiðju. Eftir uppsetningu er ásteypt og platan vinnur sem heild.
- Plötuþykkt (forsteypt)
- 60 mm
- Hámarkshaf
- 4 m
- Járnabinding
- Slakbent
- Tengidósir
- Tengi- og loftadósir innifaldar (vikmörk ±5 mm)
Filigreen / Cobiax 80 mm
SBS-F80P
Forspennt filigran loftaplata með innbyggðum Cobiax holrúmskúlum sem fjarlægja steypu þar sem hennar er ekki þörf. Það gefur lengri höf, léttari byggingu og minni efnisnotkun — án þess að gefa eftir í burðargetu.
- Plötuþykkt (forsteypt)
- 80 mm
- Hámarkshaf
- allt að 8 m
- Tækni
- Forspennt, Cobiax holrúmskúlur
- Ávinningur
- ~30% minni steypa, léttari plata
Svalir
Forsteyptar svalir
SBS-B
Forsteyptar svalaplötur steyptar á hvolfi í mótum með tilbúnum vatnshalla og innsteyptu niðurfalli. Eiga við þar sem svalir eru í lausu lofti (útkragaðar). Þar sem íbúð er undir svölum er notuð filigran-plata með einangrun og hellum í staðinn.
- Vatnshalli
- Innbyggður í mót
- Niðurfall
- Innsteypt
- Gerðir
- Beinar svalir · hornsvalir · svalagangur
- Tenging
- Tengijárn ganga inn í milliplötu
Stigar og pallar
Stigar og stigapallar
SBS-ST
Forsteyptir stigar og stigapallar með sléttu yfirborði, tilbúnir til uppsetningar. Fljót uppsetning og mikil nákvæmni, sem minnkar vinnu á byggingarstað.
- Gerðir
- Beinn stigi · hálfpallastigi · stigapallur
- Frágangur
- Verksmiðjuframleitt, slétt yfirborð
Sökklar
Forsteyptir sökklar
SBS-SK
Forsteyptar sökkuleiningar sem mynda undirstöðu undir burðarveggi hússins. Liggja undir öllum burðarveggjum — bæði útveggjum og steyptum innveggjum.
- Hlutverk
- Undirstaða undir alla burðarveggi (út- og innveggi)
- Frágangur
- Forsteyptar einingar, fljót niðurlögn
Staðaldeili
Stöðluð deili sýna meginhugmynd hverrar tengingar í kerfinu. Full skrá og allar skýringarmyndir eru á staðaldeilasíðunni.
Viðauki
- EN 1992 / Eurocode 2 — Hönnun steinsteypumannvirkja
- EN 14992 — Precast concrete wall elements
- EN 13369 — Common rules for precast concrete products
- EN 15258 — Retaining wall elements
- ÍST EN — íslensk innleiðing Eurocode
Sérsteypan ehf.
Víkursandur 10, 815 Þorlákshöfn
s. 695 2070 · gulli@sersteypan.is
www.sersteypan.is
Fyrir tæknilegar upplýsingar, verðtilboð og hönnunaraðstoð skal hafa samband við Sérsteypuna.