10 m
Hámarkslengd veggja
4 m
Hámarkshæð veggja
20 t
Lyftigeta á einingu
8 m
Filigreen hámarkshaf
Af hverju Sérsteypan?
- Framleitt á Íslandi í nýrri verksmiðju í Þorlákshöfn
- Stórar veggeiningar — allt að 10 m langar og 4 m háar
- 20 tonna lyftigeta og sérhæfð framleiðsluborð
- Filigran og samlokuveggir frá sama framleiðanda
- Filigreen / Cobiax lausnir með minni steypunotkun
- Hönnunarstuðningur fyrir verkfræðinga og arkitekta
Veggir
Samlokuveggur 320 mm
SBS-S320
Einangraður forsteyptur útveggur, tilbúinn að utan og innan.
Forsteyptur samlokuveggur með innbyggðri einangrun. Veðurkápa og innra byrði eru steypt í einu lagi með einangrun á milli, þannig að veggurinn kemur fulleinangraður á byggingarstað og tilbúinn fyrir lokafrágang beggja vegna.
320 mm
70 mm veðurkápa · 180 mm einangrun · 70 mm innra byrði
allt að 10 m
allt að 4 m
Innbyggð, samfelld
ÁFERÐIR
NOTKUN
Íbúðarhúsnæði · Atvinnuhúsnæði · Opinber mannvirki
- Mikil varmaeinangrun, engin kuldabrú
- Hröð uppsetning — veggur kemur tilbúinn
- Verksmiðjuframleidd gæði og nákvæmni
- Lágur viðhaldskostnaður
Burðarveggur 150 mm
SBS-W150
Heilsteyptur burðarveggur fyrir fjölbýli og atvinnuhúsnæði.
Heilsteyptur forsteyptur burðarveggur sem ber lóðrétt álag og myndar skilrúm milli rýma. Verksmiðjuframleiddur með mikilli nákvæmni sem fækkar vinnustundum á byggingarstað.
150 mm
allt að 10 m
allt að 4 m
Slétt, tilbúið fyrir frágang
ÁFERÐIR
NOTKUN
Fjölbýli · Skrifstofuhúsnæði · Iðnaðarbyggingar
- Hröð uppsetning
- Mikil nákvæmni
- Færri vinnustundir á byggingarstað
Innveggur 120 mm
SBS-W120
Forsteyptur innveggur með sléttu yfirborði
Forsteyptur innveggur með sléttu yfirborði tilbúinn fyrir málningu eða
aðra yfirborðsmeðferð. Skilar jöfnu, hljóðdeyfandi skilrúmi án
múrverks á staðnum.
120 mm
allt að 10 m
Slétt, tilbúið fyrir málningu
ÁFERÐIR
NOTKUN
Fjölbýli · Skrifstofur · Skólar og opinber rými
- Slétt yfirborð, lítil eftirvinna
- Góð hljóðvist
- Hröð uppsetning
Filigran loftaplötur
Filigran loftplata 60 mm
SBS-F60
Slakbent filigran loftplata, hámarkshaf 4 m
Slakbent filigran loftplata sem virkar sem varanlegt mót fyrir
ásteypu. Tengi- og loftadósir eru steyptar inn í verksmiðju.
Eftir uppsetningu er ásteypt og platan vinnur sem heild.
60 mm
4 m
Slakbent
Tengi- og loftadósir innifaldar (vikmörk ±5 mm)
NOTKUN
Fjölbýlishús · Hótel · Skrifstofur · Skólar
- Hraðari framkvæmdir
- Minni mótavinna
- Mikil gæði og slétt undirloft
Filigreen / Cobiax 80 mm
SBS-F80P
Forspennt loftplata með innbyggðum holrúmskúlum
Forspennt filigran loftaplata með innbyggðum Cobiax holrúmskúlum sem fjarlægja steypu þar sem hennar er ekki þörf. Það gefur lengri höf, léttari byggingu og minni efnisnotkun — án þess að gefa eftir í burðargetu.
80 mm
allt að 8 m
Forspennt, Cobiax holrúmskúlur
~30% minni steypa, léttari plata
NOTKUN
Bílastæðahús · Skrifstofur · Verslunarrými · Stór fjölbýlishús
- Lengri höf (allt að 8 m)
- Minni steypunotkun og kolefnisspor
- Léttari bygging
Svalir
Forsteyptar svalir
SBS-B
Svalaplötur með vatnshalla og innsteyptu niðurfalli
Forsteyptar svalaplötur steyptar á hvolfi í mótum með tilbúnum
vatnshalla og innsteyptu niðurfalli. Eiga við þar sem svalir eru í
lausu lofti (útkragðar). Þar sem búið er undir svölum er notuð
filigran-plata með einangrun og hellum í staðinn.
Innbyggður í mót
Innsteypt
Beinar svalir · hornsvalir · svalagangur
Tengijárn ganga inn í milliplötu
NOTKUN
Fjölbýli · Íbúðarhúsnæði
- Tilbúinn vatnshalli og niðurfall
- Útkragaðar lausnir
- Fljót uppsetning
Stigar og pallar
Stigar og stigapallar
SBS-ST
Forsteyptir stigahlaup og pallar
Forsteyptir stigar og stigapallar með sléttu yfirborði, tilbúnir til
uppsetningar. Fljót uppsetning og mikil nákvæmni, sem minnkar vinnu á
byggingarstað.
Beinn stigi · hálfpallastigi · stigapallur
Verksmiðjuframleitt, slétt yfirborð
NOTKUN
Fjölbýli · Atvinnuhúsnæði · Opinber mannvirki
- Fljót uppsetning
- Mikil nákvæmni
- Minni vinna á verkstað
Sökklar
Forsteyptir sökklar
SBS-SK
Sökkuleiningar undir burðarveggi
Forsteyptar sökkuleiningar sem mynda undirstöðu undir burðarveggi
hússins. Liggja undir öllum burðarveggjum — bæði útveggjum og
steyptum innveggjum.
Undirstaða undir alla burðarveggi (út- og innveggi)
Forsteyptar einingar, fljót niðurlögn
NOTKUN
Allar gerðir mannvirkja
- Fljót niðurlögn
- Samræmd gæði
- Vinnur með veggjakerfinu